Selfoss marði okkur um síðustu helgi en nú sækjum við Aftureldingu heim. Líkt og Selfossi er þeim spáð góðu gengi og sigur þeirra á Fjarðabyggð í Lengjubikarnum rennir stoðum undir slíka spá. Þeir sóttu stig til KS/Leifturs á útivelli um síðustu helgi þrátt fyrir að lenda manni og marki undir í fyrrihálfleik. Ég er bjartsýnn og spái 1-1 jafntefli.
Ég er sammála Hilmari, en ætla þó að gerast svo djarfur að spá útisigri okkar manna, 1-2. Spái því að hinn grjótmagnaði og eitilharði Stefán Þór Eyjólfsson taki skotskóna með sér aftur suður og skori fyrra markið, en hinn nýji Denis skori skori hið síðara.
úfff þetta verður skemmtilegur leikur og hörku spennandi held ég. Allavega hlakkar mig mikið til. Vill ekkert spá um úrslit leiksins...eða jújú...7-6 fyrir Aftureldingu þar sem Viddi kemur sterkur inn, kallaður í byrjunarliðið og gerir fernu.
Og ef einhver kallar mig júdas í leiknum þá mun ég kjálkabrjóta Tona :)
ég held að þetta fari 3-0 fyrir öðru hvoru liðinu, ef höttur vinnur þá held ég að stebbi skori 2 og haffi 1 og óliver ver víti. Ef Afturelding vinnur þá skorar tóti tvö og gunni 1.
Heheh það er ekki séns að það gerist Pétur minn...ekki séns að ég nenni eitthvað að vera að baka í vörn og vera í okkar vítateig í horni :) en ef það gerist þá skal ég borga þér 10000 kall