Post Info TOPIC: Umfjöllun um leiki
Haffi

Date: Jun 7, 2006
Umfjöllun um leiki
Permalink   


Sælar....


Sá að einhver vildi fá umfjöllun um leikina ykkar á Höttur.tk.


Þá vill ég endilega að einhver af leikmönnum ykkar eða einhver sem tengist liðinu skrifi um leikina. Ég get ekki skrifað um leiki sem ég sé ekki. En ég á nú eflaust eftir að sjá einhverja leiki í sumar sko, segi það ekki. Ég get látið einhvern fá aðgang að síðunni.


Einhver sem bíður sig fram? :)


Kv. Haffi



__________________
Sara

Date: Jun 7, 2006
Permalink   

Jah, ekki ég allavegna :)

En væri þá ekki alveg sniðugt að þú tækir að þér leikina hér heima og síðan einhver góður penni með útileikina, þyrfti væntanlega að vera leikmaður...? Eða mjög harður stuðningsmaður :)



__________________
Zunderman

Date: Jun 15, 2006
Permalink   

Þetta skiptir okkur blaðasnápana heilmiklu máli því fyrir utan skýrslurnar á KSÍ - sem eru óþægilega lengi að birtast fyrir kvennaboltann - eru vefir liðanna það sem við byggjum umfjöllun okkar helst á - ef við komumst ekki sjálfir á leikina.

__________________
Pétur F.

Date: Jun 16, 2006
Permalink   

Stelpur, það er ykkar að bæta úr þessu.  Haffi sér um mfl kk og ég hef hent inn umsögnum og leikskýrslum hjá 2.flokki.  Til þess að þetta verði sambærilegt hjá mfl kvk þarf einhver sem er með þar í leikjum, leikmaður eða annað að setja sig í samband við Haffa og fá aðgangsorð á síðuna. 

__________________
Page 1 of 1  sorted by
 
Tweet this page Post to Digg Post to Del.icio.us


Create your own FREE Forum
Report Abuse
Powered by ActiveBoard