Sá að einhver vildi fá umfjöllun um leikina ykkar á Höttur.tk.
Þá vill ég endilega að einhver af leikmönnum ykkar eða einhver sem tengist liðinu skrifi um leikina. Ég get ekki skrifað um leiki sem ég sé ekki. En ég á nú eflaust eftir að sjá einhverja leiki í sumar sko, segi það ekki. Ég get látið einhvern fá aðgang að síðunni.
En væri þá ekki alveg sniðugt að þú tækir að þér leikina hér heima og síðan einhver góður penni með útileikina, þyrfti væntanlega að vera leikmaður...? Eða mjög harður stuðningsmaður :)
Þetta skiptir okkur blaðasnápana heilmiklu máli því fyrir utan skýrslurnar á KSÍ - sem eru óþægilega lengi að birtast fyrir kvennaboltann - eru vefir liðanna það sem við byggjum umfjöllun okkar helst á - ef við komumst ekki sjálfir á leikina.
Stelpur, það er ykkar að bæta úr þessu. Haffi sér um mfl kk og ég hef hent inn umsögnum og leikskýrslum hjá 2.flokki. Til þess að þetta verði sambærilegt hjá mfl kvk þarf einhver sem er með þar í leikjum, leikmaður eða annað að setja sig í samband við Haffa og fá aðgangsorð á síðuna.